Hannes Jón Jónsson og drengirnir hans í Alpla Hard eru komnir í bikarúrslit í Austurríki eftir 32-37 sigur á Tirol í undanúrslitum í dag. Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur í liði Alpla Hard í dag með 7 mörk. Tryggvi Garðar Jónsson leikur einnig með Alpla Hard en hann skoraði ekki mark í leiknum í dag en stóð varnarleikinn vel í sigri þeirra. Alpla Hard mæta Krems í úrslitaleik á morgun, laugardag, en þeir unnu 14 marka sigur á Hollabrunn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.