
Krems eru bikarmeistarar eftir 24-21 sigur á Alpla Hard í Graz í kvöld. Þetta var nákvæmlega sá leikur sem maður bjóst við: vörn, barátta og lágt skor. Hard byrjuðu betur og leiddu 5-2, en Krems svöruðu með þéttari vörn og Lukas Domevscek lokaði markinu. Krems náði að jafna leikinn í 7-7 þegar Tobias Auß kom Krems yfir, litu þeir aldrei til baka og leiddu 14-12 í hálfleik. Í síðari hálfleik var sama sagan. Alpla Hard héldu sér inni í leiknum en náðu aldrei að snúa honum við. Munurinn fór aldrei yfir þrjú mörk, en mómentið var alltaf hjá Krems sem sigldu sigrinum þægilega í höfn. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 3 mörk fyrir Alpla Hard í dag en Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað. Hannes Jón Jónsson er þjálfari liðsins en hann hættir með liðið í loka tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.