
Barcelona héldu áfram sigurgöngu sinni í spænsku úrvalsdeildinni í dag þegar þeir mættu Huesca. Huesca reyndist ekki vera nein fyrirstaða fyrir Barcelona sem unnu leikinn 42-25 og héldu áfram fullkomnu gengi sínu í deildinni en þeir eru með fullt hús stiga á toppi deildinnar. Viktor Gísli stóð vaktina í marki Barcelona í dag og varði 9 skot eða 30% skotanna sem hann fékk á sig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.