
Óvænt brotthvarf Talant Dujshebaev hjá pólska stórliðinu Industria Kielce þýðir að félagið þarf að leita sér að nýjum þjálfara í fyrsta skipti í 14 ár. Talant Dujshebaev hefur stýrt Kielce frá árinu 2014 en hann vann Meistaradeildina árið 2016 með liðið og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2022 og 2023. Á dögunum tók hann við sem þjálfari franska landsliðsins og nú hefur aðstoðarmaður hans fyrrum, Krzysztof Lijewski tekið við Kielce og stýrir liðinu út tímabilið. Paweł Papaj, bráðabirgðaforseti Kielce var í viðtali við Radio Kielce á dögunum þar sem hann útilokaði tvo pólska þjálfara þá, Tomasz Strząbała og Patryk Rombel. Franski miðillinn, HandNews bendir á fjóra líklega kandídata sem gætu tekið við Kielce. Einn af þeim er Íslendingurinn, Dagur Sigurðsson sem stýrir króatíska landsliðinu í dag. Þá nefnir miðillinn einnig, Uros Zorman sem hefur lengi vel verið orðaður við þjálfarastarf Kielce en hann stýrir í dag Slovan Ljubljana og slóvenska landsliðinu. Zorman er þó með samning við Slovan til sumarsins 2028. Króatinn Ivan Čupić, goðsögn hjá Kielce er einnig á meðal þeirra valkosta sem Papaj hefur íhugað. Þá er Jaron Siewert nefndur á nafn, fyrrum þjálfari Füchse Berlin sem gerði Berlín að þýskum meisturum í fyrsta sinn í sögu félagsins á síðustu leiktíð. Það verður fróðlegt að sjá hvað stjórnarmenn Kielce ákveða að gera með framhaldið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.