
30.umferðin í þýsku Bundesligunni hélt áfram í kvöld með tveimur leikjum. Rhein-Neckar Löwen vann sannfærandi átta marka sigur gegn Melsungen í Íslendingaslag 30-22. Staðan í hálfleik var 16-10 eftir að Rhein Neckar Löwen skoruðu sex síðustu mörk fyrri hálfleiksins. Haukur Þrastarson hélt uppteknum hætti frá síðustu leikjum og var markahæstur í liði Ljónanna með átta mörk og gaf fimm stoðsendingar. Hann skoraði meðal annars fimm mörk á tíu mínútna kafla í leiknum. Í liði Melsungen skoraði Reynir Þór Stefánsson fjögur mörk úr sex skotum og Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk af línunni. Með sigrinum nálgast Rhein Neckar Löwen, Melsungen í deildinni. Ljónin eru með 33 stig í 8. sæti deildarinnar einungis stigi á eftir Melsungen. Í hinum leik kvöldsins tapaði Lemgo óvænt gegn botnliði Mindsen 28-32 á heimavelli og þar með hafa botnliðin bæði unnið leiki sína í þessari umferð en Leipzig vann Erlangen í gærkvöldi og kom sér tímabundið af botni deildarinnar. Minden fer hinsvegar upp fyrir Leipzig og Wetzlar með sigrinum og úr fallsæti eftir sigurinn. Lemgo er hinsvegar áfram í 6.sæti deildarinnar með 36 stig en um var að ræða rándýrt tap liðsins í baráttunni um Evrópudeildarsæti á næstu leiktíð. Niels Versteijnen var markahæstur í liði Lemgo með sjö mörk og Philipp Vorlicek gerði slíkt hið sama fyrir Minden.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.