Íslendingaliðið með bakið upp við vegg
Harald Dostal / APA-PictureDesk / AFP

Íslendingaliðið Alpla Hard sem endaði í 2.sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar tapaði gegn Aon Fivers 33-32 á heimavelli í fyrsta leik liðanna í 8- liða úrslitum úrslitakeppninnar en Aon Fivers endaði í 7.sæti deildarinnar.

Alpla Hard var einu marki yfir í hálfleik 15-14 en jafnræði var með á liðunum allan fyrri hálfleikinn en Alpla Hard náði mest tveggja marka forystu. Lærisveinar Hannesar Jóns Jónssonar höfðu undirtökin í upphafi seinni hálfleiks og komust mest þremur mörkum yfir í stöðunni 20-17, 21-18 og 22-19 en þá jöfnuðu Aon Fivers metin í stöðunni 22-22.

Lokamínútur leiksins voru æsi spennandi en Alpla Hard voru 32-30 yfir þegar skammt var eftir en Aon Fivers skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt. Liðið hafði síðast verið yfir í leiknum í stöðunni 1-2.

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði tvö mörk í leiknum og gaf sjö stoðsendingar í liði Alpla Hard en Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað. Liðin mætast í annað sinn á þriðjudagskvöldið en vinna þarf tvo leiki í einvíginu til að komast áfram.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top