
Íslensku þjálfarnir, Rúnar Sigtryggsson og Arnór Þór Gunnarsson fögnuðu báðir mikilvægum sigrum í þýsku Bundesligunni í kvöld en báðir eru í harðri fallbaráttu þegar einungis fjórar umferðir eru eftir af deildinni. Bergischer, lið Arnórs Þórs unnu eins marks sigur á Hannover-Burgdorf á heimavelli 30-29 á meðan Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans unnu ótrúlegan átta marka sigur á THW Kiel 33-25. Bergischer voru einu marki undir í hálfleik 13-14 en í stöðunni 17-17 tóku þeir forystu í leiknum sem þeir létu aldrei af hendi. Bergischer náði mest fjögurra marka forystu í leiknum í stöðunni 27-23. Soren Steinhaus var markahæstur í liði Bergischer með tíu mörk og Noah Beyer skoraði átta mörk. August Basker Pedersen og Jonathan Edvardsson skoruðu sex mörk hvor fyrir Hannover-Burgdorf. Bergischer fer upp í 17 stig með sigrinum og er nú þremur stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Wetzlar unnu síðan átta marka sigur á Kiel 33-25 en Wetzlar voru 16-11 yfir í hálfleik. Kiel komst í 2-3 í upphafi leiks en þá skoruðu lærisveinar Rúnars átta mörk í röð og breyttu stöðunni í 10-3 eftir það var ekki aftur snúið. Tristan Kirschner var markahæstur með átta mörk úr átta skotum. Rasmus Ankermann var markahæstur í liði Kiel með sex mörk. Andreas Palicka var með tíu varin skot og Anadin Suljakovic varði sjö skot og var með 50% markvörslu í marki Wetzlar. Þar með er ljóst að öll fjögur neðstu liðin í þýsku Bundesligunni unnu leiki sína um helgina en Wetzlar fara nú upp fyrir Minden og úr fallsæti með sigrinum en liðið er með 15 stig í 16.sætinu. Minden er í fallsæti með 14 stig og Leipzig er á botninum með 13 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.