Tímabilinu gæti verið lokið hjá Viggó
Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP

Tímabilinu gæti verið lokið hjá Viggó Kristjánssyni leikmanni HC Erlangen og íslenska landsliðsins en hann hefur verið að glíma við þrálát hné meiðsli undanfarnar vikur.

Viggó hefur ekkert leikið með sínu félagsliði í þýsku Bundesligunni síðustu vikur.

,,Ég lék aðeins í fyrsta leiknum eftir vináttulandsleikina gegn Svíþjóð en eftir það hef ég ekkert leikið. Það er erfitt að segja til um það hvenær ég sný aftur til baka. Þetta eru sinavandamál í hnénu og þetta tekur sinn tíma," sagði Viggó í samtali við Handkastið.

Erlangen á ekki nema fjóra leiki eftir af tímabilinu og gæti vel farið svo að tímabilinu væri lokið hjá landsliðsmanninum.

,,Þetta gætu verið tvær vikur í viðbót og þetta gæti tekið lengri tíma," sagði Viggó sem gengur í raðir stórliðs Flensburg sumarið 2027 þegar samningur hans við HC Erlangen rennur út.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top