

Íslendingaliðið Alpla Hard jafnaði metin í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar í Austurríki í gærkvöldi þegar liðið vann eins marks sigur á útivelli gegn Fivers 31-32 á útivelli. Alpla Hard sem endaði í 2.sæti deildarinnar á meðan Fivers endaði í 7.sæti tapaði óvænt fyrsta leik liðanna á heimavelli og var því með bakið upp við vegg í leiknum í gær. Jafnræði var með á liðunum í upphafi leiks en góður kafli Alpla Hard undir lok fyrri hálfleiks skilaði þeim sjö marka forystu í hálfleik 13-20. Lærisveinar Hannesar Jóns héldu þeirri forystu allt þar til í stöðunni 20-27 en þá kom slæmur kafi hjá liðinu og hægt og bítandi unnu heimamenn sig betur inn í leikinn og þegar upp var staðið hafði liðið minnkað muninn í eitt mark en lengra komust þeir ekki. Oddaleikur því framundan á föstudagskvöldið. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði þrjú mörk úr átta skotum fyrir Alpla Hard og Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað. Allir Íslendingarnir í Alpla Hard yfirgefa félagið í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.