Það varð ljóst í vikunni hvaða fjögur lið leika í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar, Final 4 í Köln um miðjan maí. Mikil dramatík var í tveimur viðureignum 8-liða úrslitanna en meðal annars sló Füchse Berlín út Veszprém eftir vítakastkeppni og í Danmörku vann Álaborg, Orra Frey Þorkelsson og félaga í Sporting eftir spennuþrungnar lokamínútur. Töluvert minni spenna var hinsvegar þegar Barcelona tryggði sér áfram eftir sigur á Nantes og þá fór Magdeburg örugglega áfram í undanúrslitin eftir tvo sannfærandi sigra gegn Pick Szeged. Hér að neðan má sjá hápunktana úr leikjum gærkvöldsins. Magdeburg - Pick Szeged Füchse Berlin - Veszprém Álaborg - Sporting Barcelona - Nantes

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.