Króatískir landsliðsmenn orðaðir við Hannover-Burgdorf
MARIUS BECKER / AFP

Þýska handknattleiksfélagið Hannover-Burgdorf er sagt hafa áhuga á tveimur króatískum landsliðsmönnum, þeim Matheo Maraš og Ivan Martinovic, samkvæmt heimildum erlendra miðla.

Maraš, sem leikur með franska stórliðinu PSG, og Martinovic, leikmaður ungverska liðsins Veszprém, hafa báðir vakið athygli fyrir frammistöðu sína á síðustu misserum og eru sagðir á radarnum hjá Hannover-Burgdorf fyrir komandi tímabil.

Samkvæmt sömu heimildum yrðu möguleg félagaskipti þeirra ekki að veruleika fyrr en sumarið 2027.

Hannover-Burgdorf er talið vera að bregðast við fyrirhuguðum brottförum innan liðsins, en þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins er sagður á leið til PSG sumarið 2027. Félagið lítur því á Maraš og Martinovic sem mögulega eftirmenn til að fylla það skarð sem myndast.

Ljóst er að breytingar eru fram undan hjá félaginu, en íslenski landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson mun ganga til liðs við Hannover-Burgdorf í sumar frá norska liðinu Kolstad. Þá er annar Íslendingur innan herbúða félagsins, Heiðar Felixson, sem gegnir stöðu aðstoðarþjálfara.

Ef af kaupum verður gæti Hannover-Burgdorf því stillt upp afar áhugaverðu liði á næstu leiktíð, með blöndu af reynslumiklum landsliðsmönnum og spennandi nýjum leikmönnum.

Það er Rthandball sem greinir frá.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top