Tveir leikir fóru fram í 31.umferð þýsku Bundesligunnar í dag. Í Flensburg unnu heimamenn átta marka sigur gegn Lemgo og þá hafði Íslendingalið, MT Melsungen betur á heimavelli gegn Eisenach. Flensburg vann 38-30 eftir að hafa verið 21-17 yfir í hálfleik. Jafnræði var með á liðunum lengi vel í fyrri hálfleik en í stöðunni 16-15 náðu Flensburg 5-1 kafla og breyttu stöðunni í 21-16. Tim Suton var markahæstur allra á vellinum í Flensburg en það dugði ekki til, en hann skoraði níu mörk fyrir TBV Lemgo í leiknum. Danirnir í liði Flensburg voru atkvæðamiklir en Simon Pytlick var markahæstur hjá Flensburg með átta mörk og þeir Emil Jakobsen og Lasse Møller komu síðan með sjö mörk. Samtals skoruðu þeir því 22 af 38 mörkum Flensburg í leiknum. Flensburg er áfram í 2.sæti deildarinnar eftir sigurinn með 49 stig, þremur stigum meira en Fuchse Berlín sem mætur Kiel í stórleik umferðarinnar á morgun. Melsungen vann Eisenach með þremur mörkum í seinni leik dagsins, 37-34 eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik 20-15. Aaron Mensing var markahæstur í liði Melsungen í leiknum með tíu mörk og gaf sjö stoðsendingar. Dainis Kristopanis kom næstur með sex mörk. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk og Reynir Þór Stefánsson skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu. Hjá Eisenach var Felix Aellen markahæstur með 14 mörk. Melsungen fer upp fyrir RN Löwen með sigrinum og fara aftur upp í 7.sæti deildarinnar. Eisenach er ennþá í 13.sætinu með 21 stig. Þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni í Þýskalandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.