Við stjórnum engu af því sem gerist upp í stúku
Sævar Jónasson

ÍBV vann sannfærandi átta marka sigur gegn Val í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Valsheimilinu í dag, 27-35. ÍBV var með bakið upp við vegg eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum einvígsins.

Nú er liðið hinsvegar komið á blað, 2-1 undir og fær Val í heimsókn á sinn heimavöll næstkomandi þriðjudagskvöld.

,,Ég er ofboðslega stoltur af liðinu og þeirra nálgun í þetta verkefni. Það hafði verið auðvelt að pæla í einhverju sem skiptir engu máli, utan vallar. Það var ekki til staðar í dag og 100% fókus á þennan leik og þetta verkefni. Stelpurnar eiga allt hrós skilið fyrir sína nálgun," sagði Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV í viðtali við Handkastið eftir leik.

En hvernig var tilfinningin fyrir leiknum í dag?

,,Stundum er auðveldara að mótivera sig í leik þegar það er allt undir. Þú vinnur og kemur þessu í annan leik eða tapar og þá er þetta búið. Þá eiga leikmenn það til að sleppa af sér beislinu og prufa hluti sem þeir myndu kannski ekki annars prufa. Mér fannst það heppnast í dag og stelpunum leið vel á vellinum allan leikinn. Þá var Ólöf gjörsamlega stórkostleg í markinu, þvílík frammistaða."

Mikið hefur verið rætt um hegðun stuðningsmanna ÍBV í síðasta leik þar sem stuðningsmaður ÍBV öskraði fordómafullum ummælum í garð Hafdísar Renötudóttur markvarðar Vals í miðjum leik. ÍBV sendi í kjölfarið frá sér tilkynningu þar sem fullyrt var að stuðningsmaðurinn væri kominn í tímabundið bann.

Sólveig Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSÍ sagði að HSÍ liti málinu alvarlegum augum en ekkert meira hefur heyrst frá HSÍ um málið. Magnús var spurður út í málið.

,,Eins og fram hefur komið, þá finnst okkur þetta mjög leiðinlegt að þetta hafi átt sér stað. Í rauninni stjórnum við engu af því sem gerist upp í stúku en engu að síður finnst okkur þetta afskaplega leitt að þetta sé að eiga sér stað. Ég veit að það er búið að tala við þennan aðila. En þetta kemur okkur ekkert við og við erum í rauninni ekkert að spá í þessu."

Ítarlegra viðtal við Magnús má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top