
Opel hefur gert samstarfssamning við þýsku úrvalsdeildina og verður frá sumrinu nafnaaðili þýsku Bundesligunnar sem í dag heitir DAIKIN. Deildin mun framvegis bera heitið: Opel Handball-Bundesliga. Samningurinn tekur gildi 1. júlí 2026 og er til þriggja ára. Auk þess að verða aðalstyrktaraðili deildarinnar mun Opel einnig styðja við bæði karla- og kvennalandslið Þýskalands. Samkvæmt fréttum frá franska miðlinum HandNews verður merki Opel sýnilegt á keppnisbúningum allra liða í efstu deild sem og á landsliðsbúningum Þjóðverja. Þá verður nýtt vörumerki kynnt undir heitinu „Opel HBL“. Samstarfið er talið eitt stærsta auglýsinga- og styrktarsamstarf sem gert hefur verið í þýskum handbolta á síðustu árum. Markmiðið er meðal annars að styrkja stöðu handboltans meðal yngri kynslóða með aukinni stafrænnri markaðssetningu og sýnileika í íþróttahöllum víðs vegar um Þýskaland.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.