Haukur framlengir við ljónin
RN Lowen

Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson hefur framlengt samning sinn við þýska handknattleiksfélagið Rhein-Neckar Löwen til ársins 2028. Félagið greindi frá þessu í dag.

Haukur gekk til liðs við Rhein-Neckar Löwen síðasta sumar eftir dvöl hjá Dinamo Bucuresti í Rúmeníu og þar áður hjá pólska stórliðinu Industria Kielce, þar sem hann lék undir stjórn Talants Dujshebaev. Haukur er uppalinn á Selfossi þar sem hann sló í gegn í Olís-deildinni áður en hann fór til Póllands.

Hinn 23 ára gamli leikstjórnandi hefur fest sig í sessi sem einn af lykilmönnum Rhein Neckar Löwen en hann er stoðsendingahæsti leikmaður þýsku Bundesligunnar. Haukur er einnig markahæsti leikmaður liðsins með 190 mörk, einu marki meira en línumaðurinn Jannik Kohlbacher.

Í tilkynningu félagsins kemur fram að stjórnendur Rhein-Neckar Löwen séu afar ánægðir með þróun Hauks og telji hann mikilvægan hluta af framtíðaráformum félagsins næstu árin.

Með framlengingunni er ljóst að Haukur verður áfram í sterkustu deild heims næstu ár.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top