
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í kvöld en það voru þeir Viktor Gísli Hallgrímsson og Tjörvi Týr Gíslason. Viktor Gísli og félagar hans í Barcelona héldu áfram sínu fullkomna gengi í spænsku úrvalsdeildinni þegar þeir unnu Torrelavega á heimavelli með tólf marka mun, 36-24. Viktor Gísli varði 5 skot í leiknum og var með 39% markvörslu. Barcelona eru því ennþá með fullt hús stiga á toppi deildarinnar en þeir tryggðu sér spænska meistaratitilinn fyrir talsvert löngu síðan. Tjörvi Týr skoraði fjögur mörk fyrir HC Oppenweiler þegar þeir töpuðu í kvöld með 19 marka mun, 37-18, þegar liðið mætti Lubeck-Schwartau á útivelli. HC Oppenweiler eru langneðstir í þýsku fyrstu deildinni með einungis tvö stig á eru á leið niðri í aðra deild.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.