Þýska handknattleikssambandið hefur kynnt fjóra fyrrverandi landsliðsmenn sem verða sérstakir sendiherrar heimsmeistaramóts karla árið 2027 sem fram fer í Þýskalandi. Það eru þau Dominik Klein, Stefan Kretzschmar, Anja Althaus og Pascal Hens sem munu gegna hlutverkinu og kynna mótið á næstu misserum. Hópurinn var formlega kynntur á landsleik Þýskalands og Danmerkur í Köln um helgina. HM 2027 fer fram dagana 13. til 31. janúar undir slagorðinu „Where handball is alive“. Leikið verður í München, Stuttgart, Kiel, Magdeburg, Hannover og Köln. Mark Schober, framkvæmdastjóri DHB, sagði að markmiðið með ráðningu sendiherranna væri að auka áhuga og tryggja full hús á leikjum mótsins. Samkvæmt honum hafa rúmlega 60 prósent miða þegar selst, en sambandið vonast eftir enn meiri sölu þegar dregið verður í riðla í júní. Dominik Klein og Pascal Hens voru báðir hluti af þýska liðinu sem varð heimsmeistari á heimavelli árið 2007, en Stefan Kretzschmar og Anja Althaus eru einnig meðal þekktustu handboltaandlita Þýskalands síðustu tvo áratugi. Íslenska landsliðið mun leika riðlakeppnina í Magdeburg en dregið verður í riðla í München 10. júní næstkomandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.