HK-ingurinn, Blær Hinriksson sem gekk í raðir Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni fyrir tímabilið frá Aftureldingu verður samningslaus í sumar en hann gerði eins árs samning við Leipzigþ Erlendir miðlar segja frá því að Blær gæti verið á förum frá Leipzig en liðið situr á botni þýsku úrvalsdeildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið er með 13 stig og er fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni og þarf því ekkert minna en kraftaverk til að halda sæti sínu í deildinni. Samkvæmt dönsku handboltasíðunni Europamester er Blær orðaður við danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro/Silkeborg. Þar er bent á að félagið sé að leita að arftaka Nikolaj Læsø og er Blær sagður líklegur eftirmaður hans. RTHandball á Instagram greindi frá því fyrir helgi að Blær væri undir smásjá liða bæði í Þýskalandi og Danmörku en nefndi engin lið til sögunnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.