Barcelona hafði betur í toppslagnum
Javier Borrego / Spain DPPI / AFP

Barcelona heimsótti Logrono í dag í lokaumferð spænsku deildarinnar en liðin voru í fyrsta og öðru sæti deildarinnar fyrir leikinn.

Það fór svo að Barcelona hafði betur og vann að lokum þrettán marka sigur, 28-41, eftir að hafa leitt 19-23 í hálfleik.

Dika Mem og Ian Barrufet voru markahæstir í liði Barcelona með 4 mörk hvor en hjá Logorno var Oriol Zarzuela markahæstur með 4 mörk einnig.

Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki Barcelona allan leikinn og varði 3 skot.

Barcelona halda áfram fullkomnum árangri í spænsku deildinni og eru í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga eða 60 talsins. Logrono eru í 2.sæti deildinnar með jafn mörg stig og Granollers eða 43 talsins en enda í 2.sæti með betri markatölu og Granollers í því þriðja.

Tímabilinu er þó ekki lokið hjá Barcelona en þeir spila í Final 4 sem fram fer í Köln 13-14 júní næstkomandi þar sem þeir mæta Álaborg í undanúrslitum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top