

Tjörvi Týr og liðsfélagar hans í Oppenweiler unnu loksins leik í þýsku 1.deildinni í dag þegar liðið tók á móti Ludwigshafen. Oppenweiler unnu leikinn 33-29 og var þetta fyrsti sigur liðsins á tímabilinu sem hefur átt erfitt uppdráttar í vetur og eru löngu fallnir úr deildinni með 4 stig. Tjörvi Týr skoraði 1 mark í leiknum en hann yfirgefur liðið þegar tímabilið klárast.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.