FC Barcelona lauk spænsku Asobal-deildinni með hreinum yfirburðum og tryggði sér enn einn meistaratitilinn eftir fullkomið tímabil. Katalónska stórliðið vann alla 30 leiki sína, safnaði 60 stigum og endaði 17 stigum á undan næstu liðum í deildinni. Logroño La Rioja og Granollers deildu öðru sætinu, en Irun og Torrelavega fylgdu þar á eftir. Tölfræðin undirstrikar yfirburði Barcelona á tímabilinu. Liðið skoraði alls 1.204 mörk og fékk aðeins á sig 799, sem skilaði markatölunni +405. Meðaltal liðsins var 40,1 mark í leik og þar með setti Barcelona nýtt met í sögu spænsku deildarinnar. Gamla metið átti Barcelona sjálft frá tímabilinu 2014/15 þegar liðið skoraði að meðaltali 39,5 mörk í leik. Barcelona jafnaði einnig félagsmet sitt fyrir markahæsta leik tímabilsins með 51-32 sigri á Horneo Alicante áður en það bætti metið með 52-23 sigri á Rebi Cuenca. Með því jafnaði félagið jafnframt markamet Atlético Madrid frá tímabilinu 2011/12 þegar Madrídarliðið vann Octavio Vigo 52-27. Lið Carlos Ortega hefur þegar unnið fimm titla á tímabilinu. Auk spænska meistaratitilsins hefur Barcelona unnið Supercopa de Catalunya, Supercopa Ibèrica, heimsbikar félagsliða og Copa d'Espanya. Tímabilinu er þó ekki lokið hjá spænsku meisturunum. Um næstu helgi tekur liðið þátt í úrslitahelgi spænska bikarsins, Copa del Rey, í Alicante. Viku síðar bíður síðan úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln þar sem Barcelona fær tvö tækifæri til viðbótar til að bæta við titlasafnið á þessu tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.