Færeyskur landsliðsmaður til HØJ
HØJ

Danska handknattleiksfélagið HØJ Elite hefur staðfest komu færeyska línumannsins Ísaks Vedelsbøl frá sænska félaginu IK Sävehof. Samningurinn gildir til þriggja tímabila.

Áður hafði verið tilkynnt um komu leikmannsins til félagsins en eftir fall félagsins niður í dönsku B-deildina ríkti óvissa um það hvort Vedelsbøl myndi ganga í raðir félagsins. Nú hefur hinsvegar það verið staðfest og mun færeyski landsliðsmaðurinn því leika í dönsku B-deildinni á næstu leiktíð.

Íþróttastjóri HØJ Elite, Hans Lindberg, segist spenntur fyrir komu leikmannsins.

„Ísak er ungur, líkamlega sterkur og afar metnaðarfullur leikmaður sem getur bæði varið og spilað sókn. Hann hefur þegar sannað sig á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars með þátttöku í tveimur Evrópumótum með Færeyjum árin 2024 og 2026. Þrátt fyrir ungan aldur sjáum við mikla möguleika í honum og erum sannfærð um að hann geti styrkt liðið strax á sama tíma og hann heldur áfram að þróast í okkar umhverfi. Við hlökkum mikið til að fá hann til félagsins,“ segir Lindberg.

Vedelsbøl segist sjálfur hafa miklar væntingar til nýja tíma hjá HØJ Elite og hlakkar til að verða hluti af sterkum og metnaðarfullum leikmannahópi.

„Ég hef ákveðið að standa við félagaskiptin til HØJ Elite vegna þess að þar kem ég inn í umhverfi sem einkennist af miklum gæðum og mjög sterkum leikmönnum. Hraðinn og kröfurnar eru miklar, sem er nákvæmlega það sem ég leita að. Ég lít enn á HØJ Elite sem stað þar sem ég get tekið stór skref í minni þróun, enda er gæðastigið í hópnum hátt og metnaðurinn mikill. Ég vil fá krefjandi verkefni á hverjum degi,“ segir hann.

Vedelsbøl hóf atvinnumannaferil sinn hjá færeyska félaginu Neistanum. Árið 2023 gekk hann til liðs við H71, einnig í Færeyjum, áður en hann samdi við sænska félagið IK Sävehof. Næsta sumar mun hann síðan klæðast treyju HØJ Elite.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top