Füchse Berlín tryggði annað sætið við sérstakar aðstæður í Melsungen
(Photo by FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Mikil spenna var í 33. umferð þýsku Bundesligunnar þar sem bæði Evrópusætin og fallbaráttan var í algleymingi. SG Flensburg-Handewitt komst aftur á sigurbraut, HSG Wetzlar missti af tækifæri til að tryggja sæti sitt í deildinni og Füchse Berlin innsiglaði annað sætið.

Füchse Berlin tryggði sér annað sætið í Bundesligunni með öruggum 39-28 sigri á MT Melsungen.

Leikurinn fór fram við óvenjulegar aðstæður þar sem Evrópudeildarmeistarar Melsungen voru án nokkurra lykilmanna og máttu ekki vinna leikinn til að tryggja sæti sitt í Meistaradeidlinni á næsta ári.

Markmannsskipting hjá Berlín og 5-1 kafli strax eftir hlé reyndist lykillinn að sigrinum. Með sigrinum er annað sætið í höfn hjá Berlínarliðinu og liðið getur nú horft til lokaumferðanna með það markmið að ljúka tímabilinu af krafti og undirbúa sig fyrir Final 4 þar sem þeir mæta Magdeburg.

Reynir Þór Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Melsungen og Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt.

Á sama tíma heldur fallbaráttan áfram og Wetzlar þarf enn að bíða eftir að tryggja sæti sitt í deildinni, á meðan Flensburg fékk kærkomna upplyftingu eftir erfiðar vikur. SG Flensburg-Handewitt batt enda á erfiðan kafla með 36-31 sigri á ThSV Eisenach eftir fjögur töp í röð í öllum keppnum.

Leikurinn var jafnframt síðasti heimaleikur Johannes Golla og Kevin Möller fyrir félagið. Simon Pytlick átti stórleik og jafnaði persónulegt markamet sitt í Bundesligunni með ellefu mörkum. Marko Grgic lét einnig mikið að sér kveða gegn sínu gamla félagi og skoraði níu mörk.

HSG Wetzlar tókst ekki að tryggja sér áframhaldandi veru í Bundesligunni þegar liðið tapaði naumlega, 33-32, fyrir HSV Hamburg. Fyrri hálfleikurinn var markaveisla og liðin skiptust á að hafa forystuna áður en Wetzlar fór með naumt forskot inn í leikhléið. Síðari hálfleikurinn var jafn spennandi og þegar upp var staðið hélt Hamburg haus á lokamínútunum og tryggði sér eins marks sigur undir lokin.

Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í Wetzlar þurfa því að bíða fram í lokaumferðina til að sjá hvort þeir haldi sæti sínu í deildinni þar sem þeir mæta Magdeburg á heimavelli meðan Minden mætir Leipzig.

Úrslit kvöldsins:
Melsungen - Fusche Berlin 28-39
Flensburg - Eisenach 36-31
Hamburg - Wetzlar 33-32

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top