Haukur áhrifamestur í sóknarleik Bundesligunnar
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP

Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson var sá leikmaður sem hafði mest áhrif á sóknarleik síns liðs í þýsku Bundesligunni á nýafstöðnu tímabili samkvæmt nýrri tölfræðigreiningu frá Daikin HBL.

Greiningin byggir á svokallaðri Goal Contribution Dependence-mælingu, sem reiknar út hversu stór hluti marka liðs kemur með beinum hætti frá leikmanni, annað hvort með mörkum eða stoðsendingum. Mælikvarðinn er reiknaður með formúlunni, (Mörk + stoðsendingar) / mörk liðsins.

Niðurstöðurnar sýna að Haukur kom að 39 prósentum allra marka Rhein-Neckar Löwen á tímabilinu. Með öðrum orðum tengdist nær fjórða hvert mark liðsins Íslendingnum, ýmist sem markaskorara eða stoðsendingamanni.

Mathias Gidsel hjá Füchse Berlin hafnaði í öðru sæti listans með 37 prósenta hlutdeild, en Kai Häfner varð þriðji með 35 prósent.

Athygli vekur að tveir Íslendingar eru meðal fimm efstu leikmannanna á listanum. Auk Hauks er Ómar Ingi Magnússon í fimmta sæti eftir að hafa komið að 30 prósentum marka SC Magdeburg á tímabilinu.

Tölfræðin undirstrikar hversu stóru hlutverki Haukur gegndi hjá Rhein-Neckar Löwen á tímabilinu og sýnir jafnframt að fá lið í Bundesligunni treystu jafn mikið á einn leikmann í sóknarleik sínum og þýska félagið gerði á Íslendinginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top