Gidsel tilbúinn að taka vinstri skyttuna ef Pytlick kemur ekki fyrr til Berlínar
Bo Amstrup / Ritzau Scanpix / AFP)

Füchse Berlin stendur frammi fyrir stóru verkefni fyrir næsta tímabil þegar danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson yfirgefur félagið í sumar. Hver taki við hlutverki hans í vinstri skyttustöðunni er enn óljóst, en Mathias Gidsel hefur þegar komið með óvænta lausn.

Andersson, sem er 32 ára gamall, kveður Berlínarliðið eftir sex ár hjá félaginu og snýr heim til Danmerkur þar sem hann mun leika með HØJ Elite. Brottför hans skilur eftir stórt skarð í sóknarleik Füchse Berlin, enda hefur hann verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár.

Helsti draumakostur félagsins er Simon Pytlick hjá SG Flensburg-Handewitt. Þegar hefur verið staðfest að danski landsliðsmaðurinn gangi til liðs við Berlín sumarið 2027, en félagið reynir nú að fá hann ári fyrr.

Nicolej Krickau, þjálfari Füchse Berlin, segir þó að ekkert hafi gerst í þeim málum að undanförnu. „Nei, við vitum að undirbúningstímabilið okkar hefst 19. júlí. Auðvitað viljum við vera komin með lausn fyrir þann tíma.“

Hann staðfesti jafnframt að félagið væri ekki eingöngu að horfa til Pytlick. „Við erum með fleiri valkosti. Nú snýst þetta um að undirbúa mismunandi sviðsmyndir. Leikmannahópurinn verður klár áður en fyrsta umferð hefst.“

Á meðan fylgist Mathias Gidsel grannt með þróun mála og hefur jafnvel boðið fram eigin lausn. „Ég sagði við Nicolej að ég gæti spilað í vinstri skyttunni á næsta tímabili.“

Gidsel segir að Krickau hafi verið nokkuð hissa á hugmyndinni þegar Gidsel bar hana upp við hann. Gidsel telur þó að hugmyndin sé ekki eins langsótt og hún hljómar. Hann bendir meðal annars á samlanda sinn Mikkel Hansen sem hafi um árabil leikið hægra megin í danska landsliðinu þrátt fyrir að vera rétthentur.

„Við finnum lausn. Þetta er auðvitað ekki fullkomin staða og við verðum að viðurkenna það. Ég vil alltaf fá bestu leikmenn heims til okkar – og helst sem fyrst,“ sagði Gidsel og vísaði þar til Pytlick.

Takist ekki að fá Flensburg-stjörnuna fyrr til Berlínar hefur Gidsel engu að síður fulla trú á sínu liði.

„Þá þurfum við bara að æfa enn betur á undirbúningstímabilinu. Við erum nógu sterkir til að vera áfram meðal þeirra bestu á næsta tímabili og berjast um alla titla“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top