FC Barcelona hefur framlengt samning sinn við franska landsliðsmanninn Timothey N'Guessan um tvö ár til viðbótar. Nýi samningurinn gildir til júní 2029. N'Guessan var þegar samningsbundinn félaginu til ársins 2027 eftir að hafa skrifað undir framlengingu árið 2024, en nú hefur Barcelona tryggt sér þjónustu hans enn lengur. Vinstri skyttan kom til Barcelona sumarið 2016 frá franska félaginu Chambéry og hefur á þeim tíma fest sig í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins. Á þeim tæpu tíu árum sem N'Guessan hefur verið hjá félaginu hefur hann orðið einn af reynslumestu leikmönnum leikmannahópsins og mikilvægur hlekkur bæði innan vallar og utan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.