Jicha svekktur eftir brottreksturinn
SVEN SIMON / AFP

Filip Jicha hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega eftir að THW Kiel ákvað að láta hann fara úr starfi aðalþjálfara félagsins.

Þótt brottför hans hafi verið til umræðu um nokkurt skeið staðfesti þýska stórveldið í dag að leiðir skildu eftir tímabil sem reyndist félaginu erfitt. Kiel endaði í sjötta sæti Bundesligunnar, féll snemma úr bikarkeppninni og tapaði úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn MT Melsungen.

„Auðvitað er ég vonsvikinn yfir því að þessi ákvörðun hafi verið tekin með þessum hætti,“ skrifaði Jicha á Instagram.

Tékkinn gaf í skyn að ýmsar ástæður kynnu að liggja að baki ákvörðuninni, en vildi ekki fara nánar út í þær.

Tímabilið endaði án titils og í fyrsta sinn í áratugi verður THW Kiel án Evrópukeppni á næsta tímabili. Það varð að lokum örlagavaldur Jicha.

Í yfirlýsingu sinni sagðist hann hafa trúað því að liðið væri á réttri leið.

„Ég hafði vonast til þess að við gætum, eftir síðustu ár þar sem við þurftum að gera margar málamiðlanir, með þann leikmannahóp sem við höfum unnið markvisst að í meira en tvö ár, auk leikmanna sem voru að snúa til baka eftir löng meiðsli, komið THW Kiel aftur í fremstu röð á næsta tímabili.“

Jicha vísaði þar meðal annars til leikmannamála hjá félaginu. Kiel hefur tryggt sér þjónustu stórra nafna á borð við Domen Makuc frá Barcelona og Julian Köster frá Gummersbach, sem ætlað er að leiða félagið aftur til fyrri afreka.

Jicha benti einnig á að meiðsli hefðu haft mikil áhrif á tímabilið. Aðeins þrír leikmenn, þeir Domagoj Duvnjak, Andreas Wolff og Lukas Zerbe, léku alla leiki liðsins á tímabilinu.

Lykilmenn á borð við Elias Ellefsen á Skipagøtu, Emil Madsen og Hendrik Pekeler misstu af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla og telur Jicha að það hafi haft áhrif á möguleika liðsins til að ná markmiðum sínum.

„Það var áætlunin. Nú verður það ekki þannig og ég sætti mig við það,“ sagði Jicha að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top