U16 stelpurnar töpuðu stórt gegn Króatíu
Sævar Jónasson

Íslenska stúlkna landsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði þriðja leiknum sínum á Opna Evrópumótinu í morgun er liðið mætti Ungverjalandi í næst síðasta leik sínum í riðlinum.

Eftir tvö stór töp í gær gegn Króatíu og Tékklandi var komið að því að mæta sterku liði Ungverja. Ungverjaland leiddi í hálfleik með fimm mörkum 13-8 og vann að lokum tíu marka sigur 24-14.

Kristín Einarsdóttir og Tinna Dröfn Hauksdóttir voru markahæstar í liði Íslands í leiknum með þrjú mörk hvor. 

Liðið mætir Litháen síðar í dag í síðasta leik sínum í riðlinum en mótið fer fram í Gautaborg í Svíþjóð.

Markaskorarar Íslands: Kristín Einarsdóttir 3, Tinna Dröfn Hauksdóttir 3, Helga Jenný Vigfúsdóttir 2, Matthildur Helga Ólafsdóttir 2, Elma Kolbrún Bjarnadóttir 2, Sara Sigurvinsdóttir 1, Hrefna Dís Valgeirsdóttir 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top