Eftir þrjá sigurleiki í röð á heimsmeistaramóti U20 ára kvenna í Kína leikur íslenska landsliðið gegn Egyptalandi í undanúrslitum Forsetabikarsins í Jinzhong í dag klukkan 8:15 á íslenskum tíma. Egyptaland eru ríkjandi Afríkumeistarar en liðið tapaði naumlega gegn Frakklandi og Svíþjóð í riðlakeppninni en annars hefur liðið unni hina leiki sína á mótinu stórt. Leikur Ísland og Egyptalands er sýndur beint á Youtube og hægt er að nálgast beint streymi af leiknum hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.