Þýska deildin ætlar að nýta stórstjörnurnar betur við markaðssetningu
Laurent Lairys / DPPI via AFP)

Þýska Handknattleiksdeildin (HBL) telur að komur nokkurra stærstu stjarna heims á næstu árum skapi einstakt tækifæri til að efla vinsældir deildarinnar og handboltans í heild.

Á fundi eigenda félaga í efstu tveimur deildum Þýskalands í Köln var markaðssetning leikmanna og félaga eitt helsta umræðuefnið. Þar sagði framkvæmdastjóri HBL, Frank Bohmann, að deildin þyrfti að leggja mun meiri áherslu á að kynna stærstu stjörnur sínar.

„Við teljum að við þurfum að fjárfesta mun meira í vörumerkjum félaganna og leikmannanna. Leikmaður eins og Dika Mem eða Kiko Costa hjálpar okkur aðeins ef við gerum hann þekktan – og ekki bara innan handboltasamfélagsins,“ sagði Bohmann.

Á næstu árum munu nokkrir af þekktustu leikmönnum Evrópu leika í Bundesligunni. Dika Mem gengur til liðs við Füchse Berlin árið 2027, Alex Dujshebaev verður leikmaður VfL Gummersbach og Costa-bræðurnir, Francisco og Martim, hafa verið sterklega orðaðir við SG Flensburg-Handewitt frá og með árinu 2027.

Að sögn Bohmann eru slík félagaskipti mikilvægur þáttur í að styrkja ímynd deildarinnar.

„Við sjáum þar tækifæri. Stór nöfn skapa mikla möguleika í markaðssetningu og við ætlum að nýta þá.“

Á fundinum var einnig kynnt ný þjónusta sem HBL mun bjóða öllum félögum deildarinnar.

Með henni verður hægt að mæla nákvæmlega hvaða verðmæti styrktaraðilar fá með sýnileika sínum á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum miðlum.

„Ef félag birtir til dæmis mynd af leikmanni að skjóta þar sem merki styrktaraðila sést í bakgrunni getum við mælt hvaða virði sú birting hefur fyrir styrktaraðilann,“ útskýrði Bohmann.

Fram að þessu hafa slíkar mælingar fyrst og fremst byggst á sjónvarpsútsendingum, en framvegis verða allir stafrænir miðlar teknir með í reikninginn.

Markmiðið er að skapa aukið virði fyrir bæði félög og styrktaraðila, þar á meðal nýjan aðalstyrktaraðila deildarinnar, Opel, sem tók í fyrsta sinn þátt í fundi eigenda félaganna.

Með sífellt fleiri stórstjörnum á leið í Bundesliguna vonast forráðamenn deildarinnar til að nýta aukinn áhuga á handboltanum til að efla bæði ímynd deildarinnar og tekjumöguleika félaganna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top