Talsverðar breytingar verða á þjálfurum liðanna í Olís-deild karla fyrir keppnistímabilið 2026/27. Fjórir af tólf þjálfurum deildarinnar verða á sínu fyrsta tímabili með liðin sín. Mesta athygli vekur að Aron Pálmarsson hefur tekið alfarið við þjálfun FH. Sigursteinn Arndal, sem stýrt hefur FH undanfarin ár, færist yfir í hlutverk aðstoðarþjálfara. Hrannar Guðmundsson hefur tekið við Aftureldingu eftir að hafa stýrt Stjörnunni undanfarin ár. Við starfi hans hjá Stjörnunni tekur Sverrir Eyjólfsson. Á Selfossi hefur Örn Þrastarson verið ráðinn þjálfari eftir að Carlos Martin Santos sagði upp samningi sínum við félagið og heldur til Svíþjóðar þar sem hann þjálfar á komandi keppnistímabili. Athygli vekur að allir fjórir nýju þjálfararnir eiga það sameiginlegt að taka við þjálfun hjá sínu uppeldisfélagi. Þjálfarar liðanna í Olís-deild karla á tímabilinu 2026/27 eru því:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.