Gríðarlega svekktur eftir að hafa verið með yfirhöndina í 55 mínútur
HSÍ

Íslenska U20 ára karla landsliðið mátti sætta sig við grátlegt tap gegn Króötum í dag, 25-26, en sigurmark Króata kom í þann mun sem leiktíminn rann út en íslenska landsliðið hafi verið fjórum mörkum yfir á tímabili í síðari hálfleik.

Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins, var ótrúlega svekktur í leiksloka og sagði liðið hafa átt meira skilið úr leiknum.

,,Við spiluðum frábærlega í 55 mínútur í dag og vorum með yfirhöndina meira og minna allan þann tíma."

Ágúst var ánægður með fyrri hálfleikinn þar sem varnarleikurinn og markvarslan var mjög góð þar sem bestu menn Króata áttu í vandræðum sóknarlega. Sóknarleikur strákanna fylgdi einnig með og náðu strákarnir að opna Króatana trekk í trekk og búa til góðar stöður sóknarlega.

,,Það sama var í raun upp á teningnum í síðari hálfleik þar sem við vorum komnir mest með fjögurra marka forskot en þá lendum við í tveimur brottvísunum og förum illa með boltann og Króatar refsa okkur mjög hratt og síðan kemur þetta lokamark í bakið á okkur þegar leikurinn klárast."

Þrátt fyrir svekkelsið sagðist Ágúst vera mjög sáttur með baráttuna og vinnusemina í liðinu og fannst þeir eiga skilið að minnsta kosti eitt stig úr leiknum en þeir muni stíga upp og mæta klárir í leikinn gegn Dönum á morgun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top