Kvennalið ÍBV verður án norska markvarðarins Amalie Fröland á komandi keppnistímabili eftir að hún sleit krossband í oddaleik gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð. Fröland varð fyrir meiðslunum í lokaleik einvígisins og ljóst er að hún verður frá keppni um lengri tíma. Handkastið hafði samband við Magnús Stefánsson þjálfara ÍBV og spurði hvernig félagið hygðist bregðast við fjarveru norska markvarðarins. „Eftir frammistöðu Ólafar í kjölfar meiðsla Amalie ætlum við að rétta Ólöfu keflið. Svo skoðum við bara hvort við finnum markmann til að vera með henni og Töru sem veitir þeim samkeppni. En það er hægara sagt en gert að finna markmann á þessum tímapunkti,“ sagði Magnús. Á Magnús við, Ólöf Maren Bjarnadóttur sem kom gríðarlega sterk inn í lið ÍBV í úrslitaeinvíginu gegn Val sem tapaðist 3-1. Ólöf Maren hafði verið í skugganum á Fröland allt tímabilið en fékk stórt hlutverk í úrslitaeinvíginu eftir meiðsli Amalie Fröland.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.