Fyrri hálfleikurinn var frábær
EHF

U20 ára landslið karla tapaði í dag fyrir Danmörku 31-29 í lokaleik sínum í milliriðli Evrópumótsins. Með úrslitunum er ljóst að Ísland leikur um 9.–12. sætið á mótinu og nær ekki sæti í átta liða úrslitum.

Þrátt fyrir vonbrigðin var Ágúst Jóhannsson, þjálfari liðsins, ánægður með margt í frammistöðu sinna manna gegn einu sterkasta liði mótsins.

„Það er ótrúlega margt gott sem við getum tekið út úr þessum leik. Við vorum að spila gegn firnasterku liði Danmerkur. Fyrri hálfleikurinn var frábær hjá okkur, fyrir utan síðustu þrjár mínúturnar. Það var í raun ósanngjarnt að við skyldum vera þremur mörkum undir í hálfleik miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Við hefðum hæglega getað verið yfir þegar liðin gengu til búningsherbergja,“ sagði Ágúst.

Hann sagði að liðið hefði greitt dýru verði fyrir að nýta ekki færin sem sköpuðust.

„Við klikkum á góðum færum og gerum slæm mistök á köflum. En mér fannst baráttan og karakterinn í liðinu vera til fyrirmyndar. Strákarnir voru orðnir lúnir og þreyttir eftir erfiða leiki, en þeir gáfust aldrei upp og sýndu mikinn karakter.“

Ágúst viðurkenndi að vonbrigðin yfir tapinu gegn Króatíu í gær sætu enn í hópnum.

„Við vissum fyrir fram að leikurinn gegn Dönum yrði gríðarlega erfiður. Þess vegna erum við kannski enn svekktari yfir því að hafa ekki náð að klára leikinn gegn Króötum í gær, þar sem við vorum með yfirhöndina lengst af.“

Íslenska liðið fær nú kærkominn hvíldardag áður en keppni heldur áfram.

„Við fáum frí á morgun, nýtum tímann til að hvíla okkur og hlaða batteríin. Síðan mætum við klárir í næsta leik á fimmtudaginn og ætlum að enda mótið af krafti,“ sagði Ágúst Jóhannsson.

Á þessari stundu er ekki enn ljóst hvaða þjóð Ísland mætir í næsta leik, sem fram fer á fimmtudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top