Kiel á enn eitt magnaðasta met Bundesligunnar
SVEN SIMON / AFP

Þrátt fyrir að THW Kiel hafi misst af sæti í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 33 ár og sagt upp þjálfaranum Filip Jicha eftir vonbrigðatímabil á félagið enn eitt glæsilegasta met í sögu þýsku Bundesligunnar.

Þrátt fyrir erfið lok á samstarfinu á Tékkinn þó stóran þátt í einu merkilegasta afreki félagsins.

Frá 22. maí 2011 til 12. september 2012 vann THW Kiel alls 40 Bundesliguleiki í röð og setti met sem stendur enn í dag.

Sigurgangan spannar tvö tímabil og inniheldur meðal annars hið sögufræga tímabil 2011/12 þegar Kiel vann alla 34 deildarleiki sína og varð Þýskalandsmeistari með fullt hús stiga.

Engu öðru liði hefur tekist að jafna eða bæta það met.

SG Flensburg-Handewitt komst næst því að jafna metið þegar liðið vann 32 leiki í röð á tímabilinu frá apríl 2018 til mars 2019.

THW Kiel á einnig þriðju lengstu sigurgöngu deildarsögunnar með 27 sigra í röð á árunum 2008 og 2009.

Lengstu sigurgöngur í sögu Bundesligunnar

LiðSigrar í röðTímabil
THW Kiel4022. maí 2011 – 12. september 2012
SG Flensburg-Handewitt321. apríl 2018 – 21. mars 2019
THW Kiel276. september 2008 – 15. apríl 2009

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top