Alfreð Gíslason stýrði þýska landsliðinu alla leið í úrslitaleik Evrópumótsins 2026, en leiðin þangað var ekki áfallalaus. Nú hefur íslenski landsliðsþjálfarinn rifjað upp eitt umdeildasta atvik mótsins, þegar mistök hans í leik gegn Serbíu vöktu mikla athygli. Þýskaland tapaði leiknum 30-27 og í lok hans varð Alfreð fyrir harðri gagnrýni eftir að hafa verið örlítið of seinn að taka leikhlé. Flautan hljómaði broti úr sekúndu of seint og þar með fór þýskt mark forgörðum. „Ég held að eftir fyrstu flautuna gegn Serbíu hafi þrjár til fjórar milljónir Þjóðverja viljað reka mig,“ sagði Alfreð í viðtali við Hit Radio FFH. Þegar Þýskaland mætti Frökkum í leik um sæti í undanúrslitum kom upp svipuð staða. Þá ákvað Alfreð aftur að taka leikhlé á síðustu stundu – en í þetta sinn gekk allt upp og Þjóðverjar unnu 38-34. „Maður verður einfaldlega að fylgja innsæinu og eigin mati á aðstæðunum. Ég þarf að treysta sjálfum mér,“ sagði Alfreð. Eftir sigurinn á Króatíu, 31:28, í undanúrslitunum fékk hann meira að segja táknræna „gullflautu“ fyrir leikhléstökuna. Þrátt fyrir tap gegn Danmörku, 34-27, í úrslitaleiknum var Evrópumótið talið góður árangur fyrir Þjóðverja. Alfreð hefur nú stýrt Þýskalandi í undanúrslit á þremur af síðustu fjórum stórmótum og í lok maí var samningur hans við þýska handknattleikssambandið framlengdur til Ólympíuleikanna í Los Angeles árið 2028.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.