Danski landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen lenti í skemmtilegu hlutverki þegar hann mætti í brúðkaup fyrrum landsliðsmannsins Mads Mensah og eiginkonu hans, Line, á dögunum. Jacobsen og Mensah hafa um árabil átt í góðu sambandi innan handboltans en vinátta þeirra nær einnig langt út fyrir völlinn. Jacobsen var því meðal gesta þegar Mensah gekk í það heilaga í Þýskalandi. Brúðkaupið fór fram í Þýskalandi og þar sem margir gestanna voru ekki sterkir í þýsku taldi Jacobsen sig geta komið að góðum notum. Jacobsen þekkir vel til í Þýskalandi eftir langan feril þar í landi. Hann lék með TSV Bayer Dormagen og THW Kiel og þjálfaði síðar Rhein-Neckar Löwen. Þegar kom að athöfninni bauðst hann því til þess að þýða orð prestsins úr þýsku yfir á dönsku fyrir brúðkaupsgestina. Presturinn þáði boðið og í fyrstu gekk allt samkvæmt áætlun. Það breyttist þó fljótt. Jacobsen áttaði sig á því að þekking hans á þýsku dugði ekki endilega þegar kom að trúarlegum orðaforða brúðkaupsathafnarinnar. Í stað þess að gefast upp ákvað landsliðsþjálfarinn að bjarga sér með öðrum hætti. Jacobsen hætti að reyna að þýða orð prestsins nákvæmlega og byrjaði þess í stað að spinna upp eigin sögur um brúðhjónin fyrir gestina. Þetta upplýstu Jacobsen og Mensah þegar þeir komu fram saman á sviði á Smukfest í Danmörku. Spuninn virðist hafa hitt beint í mark hjá brúðkaupsgestunum, enda vakti óvænt túlkun landsliðsþjálfarans mikla kátínu og hlátur í salnum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.