Guðjón Valur Sigurðsson er að hefja sérstakt tímabil við stjórnvölinn hjá VfL Gummersbach eftir að hafa stýrt liðinu í fjórða sæti þýsku Bundesligunnar á síðasta tímabili. Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum og fram undan er Evrópukeppni, en samningur Guðjóns rennur jafnframt út að tímabilinu loknu. Guðjón Valur telur þó að árangurinn á síðasta tímabili breyti ekki endilega því hvernig önnur lið líta á Gummersbach. „Ég held ekki, því allir byrja aftur frá núlli. Það sem gerðist í fyrra er að baki og við misstum nokkra mikilvæga leikmenn,“ sagði Guðjón Valur í viðtali við Handball-World. Gummersbach hefur fengið öfluga leikmenn í staðinn en Guðjón bendir á að enginn nýju leikmannanna hafi áður leikið í Þýskalandi. „Við höfum fengið góða leikmenn en enginn þeirra, þrátt fyrir mikil gæði, hefur spilað í Þýskalandi áður. Við viljum þéttast smám saman sem lið og helst auðvitað bæta okkur. Síðasta tímabil var einstakt, nú erum við með nýtt lið.“ Gummersbach snýr einnig aftur í Evrópukeppni og Guðjón Valur leynir ekki spenningi sínum fyrir því verkefni. Hún hefst þó ekki fyrr en undir lok september og áður bíður Gummersbach krefjandi byrjun í Bundesligunni. Liðið mætir meðal annars Magdeburg, Rhein-Neckar Löwen, Melsungen og Berlin snemma á tímabilinu. „Það er einmitt þetta sem gerir Bundesliguna svona sérstaka og þess vegna erum við svona ánægðir með að spila þar. Hver einasti leikur er ótrúlega erfiður og krefjandi og það er gaman að undirbúa sig fyrir hvern andstæðing. Maður finnur tilhlökkunina hjá liðinu.“ Samningur Guðjóns Vals við Gummersbach rennur út næsta sumar en hann segist ekki velta þeirri stöðu mikið fyrir sér. „Ég veit að þetta er gríðarlega stórt umræðuefni hjá kollegum ykkar. Ef það er ekkert að frétta þá reynir fólk að búa til sögur.“ Guðjón bendir á að bæði leikmenn og þjálfarar starfi almennt samkvæmt tímabundnum samningum og ómögulegt sé að segja nákvæmlega hvað framtíðin beri í skauti sér. „Í fullkomnum heimi væri allt frábært, við værum að berjast um alla stóru titlana, héldum áfram að þróa leikmenn og allt héldi áfram eins. En ég veit líka að ef ég tapa tólf leikjum í röð þá er ég atvinnulaus.“ Guðjón ætlar því ekki að tjá sig frekar um framtíð sína fyrr en ákvörðun hefur verið tekin. „Þangað til við höfum skrifað undir, þangað til það hefur verið ákveðið hvort ég verð áfram eða ekki, segi ég ekkert.“ Hann ítrekar þó að honum og fjölskyldunni líði vel í Gummersbach. „Ég segi þetta alltaf: Fjölskyldan mín og ég erum mjög ánægð í Gummersbach og ég er ótrúlega þakklátur Christoph Schindler fyrir tækifærið sem ég fékk, að gefa fyrrverandi leikmanni tækifæri til að verða þjálfari.“ Guðjón Valur viðurkennir að ferill hans sem einn besti handboltamaður sinnar kynslóðar hafi hjálpað honum þegar hann hóf þjálfaraferilinn. „Það hjálpaði mér hundrað prósent að fá starfið. Ég hefði aldrei fengið það ef ég hefði unnið hjá Lidl í 15 ár og ekkert komið nálægt handbolta.“ Það hafi þó ekki þýtt að starfið hafi einfaldlega verið afhent honum. Guðjón þurfti að kynna hugmyndir sínar fyrir Schindler áður en ákvörðun var tekin um ráðninguna. „Hann kom ekki bara til mín og réð mig. Ég kynnti hugmyndir mínar fyrir honum og hann sagðist ætla að gera allt til þess að gera þær að veruleika. Hann hefur meira en staðið við það loforð og þess vegna er ég honum þakklátur.“ Guðjón tekur jafnframt lítið af heiðrinum fyrir uppgang Gummersbach. „Nafnið mitt og ferillinn hjálpuðu mér vissulega að koma fætinum inn fyrir dyrnar en við fórum ekki upp á fyrsta árinu. Við enduðum í tíunda sæti. Það voru leikmennirnir sem komu okkur upp. Og Christoph. Hann er sá sem byggði þetta allt upp og ég er sá heppni og þakkláti sem fær að vinna hér.“ „Við erum með framúrskarandi hæfileikaríka leikmenn í hópnum og það gerir mig stoltan og ánægðan að fá að vinna með þeim.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.