Nýtt tímabil í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta hefst 27. ágúst þegar 18 lið hefja keppni í Opel Handball Bundesliga eins og deildin heitir í ár. Saga liðanna í deildinni er afar mismunandi og á meðan sum eru nýkomin upp hafa önnur haldið sæti sínu meðal þeirra bestu áratugum saman. Þegar Bundesliga var stofnuð árið 1966 var deildinni skipt í tvo riðla. Af stofnliðum deildarinnar eru aðeins VfL Gummersbach og Füchse Berlin enn meðal þeirra bestu í dag. Hvorugt félagið hefur þó verið samfellt í deildinni frá upphafi. Gummersbach féll árið 2019 og sneri aftur 2022, en Füchse Berlin var utan Bundesligunnar í meira en tvo áratugi, frá 1986 til 2007. Meðal annarra liða sem tóku þátt í fyrsta tímabilinu voru GWD Minden, VfL Lübeck-Schwartau, Saase3 Leutershausen og TV Hochdorf, auk hins upprunalega Hamburger SV, sem er ekki sama félag og HC Hamburg í dag. THW Kiel á lengstu samfelldu veruna í Bundesligunni af þeim félögum sem leika þar í dag. Kiel komst fyrst upp árið 1967 en féll úr deildinni árið 1973. Félagið tryggði sér strax sæti á ný og hefur leikið samfellt í efstu deild frá 1974. Síðan þá hefur Kiel orðið að sigursælasta félagi þýska handboltans og á jafnframt flest tímabil í Bundesligunni. TBV Lemgo Lippe kemur næst en félagið hefur leikið samfellt í deildinni frá árinu 1983. SC Magdeburg skipar sérstakan sess í þessari sögu vegna skiptingar Þýskalands. Félagið hafði leikið samfellt í austurþýsku Oberliga frá stofnun þess árið 1964 og hefur því verið í efstu landsdeild frá þeim tíma. Magdeburg gat hins vegar ekki tekið þátt í Bundesligunni fyrr en eftir sameiningu Þýskalands og hefur leikið þar samfellt frá 1991. SG Flensburg-Handewitt fylgdi árið 1992 og HSG Wetzlar hefur haldið sæti sínu samfellt frá 1998. Rhein-Neckar Löwen og MT Melsungen komu bæði upp árið 2005 og hafa verið í deildinni síðan. Füchse Berlin sneri aftur 2007 og TSV Hannover-Burgdorf hefur verið samfellt í deildinni frá 2009. HBW Balingen-Weilstetten snýr aftur í Bundesliguna í sumar eftir tveggja ára fjarveru eftir að hafa orðið meistari í B-deildinni. SG BBM Bietigheim snýr einnig aftur meðal þeirra bestu og gerði það strax eftir eitt tímabil í næstefstu deild. Bergischer HC kom aftur upp árið 2025 og er nú að fara inn í sitt 14. tímabil í Bundesligunni. Kiel og Lemgo skera sig því nokkuð úr þegar kemur að samfellu í Bundesligunni. Kiel hefur nú verið samfellt meðal þeirra bestu í meira en hálfa öld og Lemgo í rúma fjóra áratugi.Samfellt í Bundesligunni frá:
Lið Frá THW Kiel 1974 TBV Lemgo Lippe 1983 SC Magdeburg 1991 SG Flensburg-Handewitt 1992 HSG Wetzlar 1998 Frisch Auf Göppingen 2001 Rhein-Neckar Löwen 2005 MT Melsungen 2005 Füchse Berlin 2007 TSV Hannover-Burgdorf 2009 TVB Stuttgart 2015 HC Erlangen 2016 HSV Hamburg 2021 VfL Gummersbach 2022 ThSV Eisenach 2023 Bergischer HC 2025 HBW Balingen-Weilstetten 2026 SG BBM Bietigheim 2026

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.