
Nýtt tímabil í Opel Handball Bundesliga er handan við hornið og fjölmargir áhugaverðir leikmenn hafa bæst við deildina. Fyrrum landsliðsmennirnir Paul Drux, Patrick Groetzki og Niklas Weller hafa allir tekið við nýjum hlutverkum hjá sínum gömlu félögum og nefna þá nýju leikmenn sem þeir eru spenntastir fyrir að fylgjast með í vetur. Drux, sem hóf störf á skrifstofu Füchse Berlin 1. júlí, horfir sérstaklega til franska landsliðsmannsins Aymeric Minne sem gekk til liðs við SG Flensburg-Handewitt frá HBC Nantes. „Ég er gríðarlega spenntur fyrir Aymeric Minne hjá Flensburg. Mér finnst hann vera leikmaður sem getur verið allt – en einhvern veginn líka ekkert,“ sagði Drux við Handball-World. Drux þekkir vel til Minne eftir viðureignir Füchse og Nantes og segir Frakkann hafa átt stórkostlega leiki gegn Berlínarliðinu. „Hann skaut okkur einfaldlega í kaf og vann leikinn nánast einn síns liðs.“ Drux segir þó að frammistaða Minne hafi ekki alltaf verið jafn stöðug. „Í sumum leikjum var hann algjörlega úr takti og gaf okkur fullt af sendingum.“ Það geri komu hans til Flensburg sérstaklega áhugaverða enda mikil samkeppni og margir leikmenn sem vilja stór hlutverk. „Hjá SG eru auðvitað leikmenn sitt hvorum megin við hann sem vilja skora jafn mikið og hafa líka metnað til að spila. Ég er mjög forvitinn að sjá hvernig þeir leysa það sem lið.“ Patrick Groetzki, sem gekk til liðs við starfslið Rhein-Neckar Löwen í sumar eftir að hafa lagt skóna á hilluna, velur hinn tvítuga Nikola Roganovic hjá VfL Gummersbach. „Hann er einn allra efnilegasti leikmaður heims í handbolta,“ sagði Groetzki. Hann gat þó ekki látið hjá líða að benda á aldursmuninn. „Ég spilaði meira að segja einu sinni á móti pabba hans, sem er aldrei gott merki,“ sagði Groetzki léttur. Hann hefur mikla trú á að Roganovic geti sett mark sitt á Bundesliguna. „Ég er algjörlega sannfærður um að hann muni hafa gríðarleg áhrif á deildina á næstu árum.“ Groetzki nefnir einnig Niclas Mierzwa hjá Rhein-Neckar Löwen og segir Svisslendinginn geta komið mörgum á óvart eftir að hafa sýnt góða takta. Niklas Weller, sem nú er forseti HC Hamburg, nefnir Jannik Schrader hjá Bergischer HC. Schrader kom til félagsins frá VfL Lübeck-Schwartau og Weller þekkir hann frá tíma sínum í þýsku B-deildinni. „Hann er leikmaður sem hefur spilað virkilega, virkilega vel í B-deildinni í mörg ár og var líftrygging Schwartau. Sóknarlega getur hann nánast allt,“ sagði Weller. Hann bendir þó á að það geti einnig verið áskorun þegar leikmenn taka skrefið upp í Bundesliguna. „Við höfum oft séð með leikmenn sem koma úr B-deildinni að stundum er næstum betra að vera virkilega góður í einum hlut en að geta gert svolítið af öllu.“ Weller telur engu að síður að tækifærið sé til staðar fyrir Schrader hjá Bergischer HC. „Eftir brottfarirnar hjá BHC hefur myndast ákveðið tómarúm sem þeir þurfa nýja lykilmenn til að fylla.“ Minne, Roganovic og Schrader eru því þeir þrír leikmenn sem fyrrum Bundesliguleikmennirnir bíða sérstaklega spenntir eftir að sjá þegar nýtt tímabil fer af stað.Groetzki velur Roganovic
Weller horfir til Schrader

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.