
Stórstjörnur handboltans virðast í auknum mæli stefna í þýsku úrvalsdeildina. Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins, segir þróunina frábæra fyrir Bundesliga en óttast um leið hvaða áhrif hún geti haft á stærstu félagsliðin utan Þýskalands. Fjöldi stórra félagaskipta hefur verið staðfestur í þýska handboltanum að undanförnu og enn fleiri stórstjörnur eru á leiðinni í deildina á næstu árum. Johannes Golla, sem sneri aftur til MT Melsungen frá SG Flensburg-Handewitt í sumar, segir þróunina sýna hversu sterka stöðu þýska deildin hefur skapað sér. „Þetta er frábært fyrir HBL. Þetta sýnir líka að félögin hér eru að vinna gott starf og að við bjóðum upp á mest aðlaðandi deildina út frá íþróttalegu sjónarmiði,“ sagði Golla í samtali við Hessenschau. Golla sér þó einnig aðra hlið á þróuninni og hefur áhyggjur af stærstu félögum heims utan Þýskalands. Hann bendir á að áður hafi bestu leikmenn heims dreifst meira á milli stærstu deilda Evrópu. „Áður fóru leikmenn af þessu kalíberi oft þangað og ekki allir í Bundesliga. Nú snýst allt um Þýskaland.“ Þar vísar Golla meðal annars til leikmanna á borð við Dika Mem, Francisco Costa, Martim Costa, Thibaud Briet og Aymeric Minne. Minne er kominn til Þýskalands en Mem, Costa-bræðurnir og Briet munu allir fylgja í kjölfarið á næstu tveimur árum. Innflutningur fleiri heimsklassaleikmanna gerir jafnframt eina sterkustu deild heims enn erfiðari fyrir liðin sem þar spila. Golla þekkir það vel og býst ekki við að verkefnið verði auðveldara á komandi árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.