Grill66-deild karla fer af stað á föstudaginn þegar Grótta mætir Víði á heimavelli. Þrír leikir fara síðan fram á laugardag áður en umferðin lýkur á sunnudag með tveimur leikjum. ÍR féll úr Olís-deild karla á síðustu leiktíð og leikur því aftur í Grill66-deildinni eftir tveggja ára dvöl í Olís-deildinni. Á samfélagsmiðlum ÍR í vikunni var birt viðtal við Bjarna Fritzson þjálfara ÍR sem var spurður út í undirbúningstímabilið og stemninguna í hópnum fyrir tímabilið. ,,Undirbúningstímabilið hefur gengið miög vel. Ólafur Stefánsson kom og hjálpaði okkur í fyrri hluta undirbúningstímabilsins og það var mjög kærkomið fyrir strákana að fá smá breytingu og fá hann inn í líf sitt," sagði Bjarni og bætti við: ,,Síðan höfum verið spilað mikið af leikjum að undanförnu og við höfum breikkað hópinn mjög mikið. Við erum klárir í slaginn." ÍR fer á Ísafjörð í 1.umferðinni og mætir þar Herði á laugardaginn klukkan 17:00. Bjarni segir að það sé frábær stemning í hópnum fyrir fyrsta leiknum. Hann hvetur Breiðhyltinga til að koma og styðja við liðið í vetur í baráttunni um að koma sér aftur upp í Olís-deildina. ,,Komið og styðjið strákana okkar. Við erum að halda áfram okkar þróun með strákana úr hverfinu. Við erum að spila á ungum ÍR-ingum og líkt og við gerðum í bikarúrslitunum í fyrra þá ætlum við að halda áfram að gera fólkið í hverfinu stolt," sagði Bjarni að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.