
Óvissa ríkir um þátttöku Oscars Lykke í næsta leik Aftureldingar eftir að Daninn fór meiddur af velli í 35-29 sigri liðsins gegn Víkingi í 1. umferð Olís-deildar karla í gær. Lykke varð fyrir meiðslunum í síðari hálfleik þegar hann braust í gegnum vörn Víkinga og Sigurður Páll Matthíasson, fyrirliði Víkings, braut illa á honum. Lykke féll við og gat ekki haldið leik áfram. „Þetta lítur ekkert vel út með Oscar. Þetta var ljótt brot og hann er slæmur í öxlinni. Hann fer í frekari skoðun í dag. Það var bara rifið í öxlina á honum í skotinu og hann var mjög slæmur í gær. Við erum bara að bíða eftir hvað kemur út úr skoðun í dag,“ sagði Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar, í samtali við Handkastið. Leikur Aftureldingar og Víkings var með óvenjulegasta móti. Fyrri hálfleikurinn fór fram á föstudagskvöld en vegna rafmagnsleysis í Myntkauphöllinni var ekki hægt að ljúka leiknum. Afturelding leiddi 17-12 þegar leik var frestað og síðari hálfleikurinn var síðan leikinn á sunnudag. Mosfellingar héldu forskotinu og fögnuðu að lokum 35-29 sigri. Lykke hafði verið öflugur áður en hann þurfti frá að hverfa og skoraði sjö mörk í leiknum. Aðeins Árni Bragi Eyjólfsson skoraði fleiri fyrir Aftureldingu, eða átta mörk. Sigurður Páll var markahæstur Víkinga með átta mörk. Afturelding tekur á móti FH í 2. umferð Olís-deildarinnar á fimmtudagskvöld klukkan 20:15 í Myntkauphöllinni. Óvissa ríkir um hvort Lykke verði leikfær í þann leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.