Fram semur við nýjan hægri hornamann
Kristinn Steinn Traustason

Kristján Pétur Barðason hefur gengið í raðir Fram frá HK og mun leika með Fram í Olís-deild karla.

Kristján Pétur er hægri hornamaður og uppalinn hjá HK. Hann hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands.

Hann hefur lítið komið við sögu undanfarin tvö tímabil. Kristján Pétur lék aðeins fimm leiki með HK í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og kom ekkert við sögu tímabilið 2024–2025.

Kristján Pétur framlengdi samning sinn við HK í ágúst á síðasta ári en hefur nú ákveðið að söðla um og halda ferlinum áfram í Úlfarsárdalnum. Er Kristjáni ætlað að fylla skarð Eiðs Rafns Valssonar sem gekk í raðir FH seint í sumar.

Þá hefur Arnar Snær Magnússon verið að glíma við meiðsli og lék Fram með rétthenda leikmenn í hægra horninu í 1.umferðinni gegn Þór.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top