Kuwait var eina þjóðin sem var til í að koma til Íslands
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, segir að Kúwait hafi verið eina landsliðið sem var reiðubúið að koma hingað til lands og mæta Íslandi í undirbúningi liðsins fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi.

Ísland mætir Kúwait í tveimur vináttulandsleikjum í Laugardalshöll dagana 7. og 9. janúar. Upphaflega stóð til að Egyptaland kæmi hingað til lands en ekkert verður af þeirri heimsókn.

„Fyrst voru þetta svekkelsi og vonbrigði því mér fannst við vera komnir með tvo frábæra leiki hérna heima á móti heimsklassaliði. Það er eitthvað sem maður vill gera sem mest af,“ sagði Snorri Steinn í samtali við Handkastið.

Nokkuð er síðan ljóst varð að Egyptar myndu ekki koma og hófst þá vinna við að finna annað landslið til að mæta Íslandi.

„Það er töluvert síðan við vissum að þeir væru ekki að koma. Þá fórum við í ákveðna vinnu, höfðum samband við fullt af þjóðum og meðal annars sendi ég á Aron Kristjánsson, þjálfara Kúwait. Ég get alveg verið hreinskilinn með það að Kúwait var eina þjóðin sem var tilbúin að koma hingað til Íslands og spila við okkur.“

Vildu halda undirbúningnum á Íslandi

Snorri og hans teymi mátu möguleikana sem voru í stöðunni en niðurstaðan varð sú að best væri að halda undirbúningnum hér heima og leika tvo leiki gegn Kúwait.

„Eftir að hafa metið þetta með mínu teymi leist okkur vel á þetta. Við vildum halda í það að vera með undirbúninginn hér heima og æfa stíft fyrir brottförina til Þýskalands.“

Íslenska liðinu stóð einnig til boða að taka þátt í fjögurra liða móti erlendis en Snorri taldi það ekki henta liðinu svo skömmu fyrir HM.

„Okkur stóð til boða að fara á fjögurra liða mót erlendis en eftir að hafa vegið og metið stöðuna fannst mér það ekki vera málið að spila þrjá leiki á þremur dögum stuttu fyrir mót.“

Býst við góðri stemningu í Höllinni

Kúwait er undir stjórn Arons Kristjánssonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands, og býst Snorri við því að góð stemning myndist í kringum leikina.

„Mér finnst gott að fá leiki og mikilvægt að menn fari í búninginn, hvað þá að spila í Laugardalshöllinni. Ég geri ráð fyrir að það verði stemning í þjóðfélaginu fyrir mótið og áhugi á þessum leikjum. Ég held að þetta verði bara gaman.“

Lengra viðtal við Snorra Stein má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top