Halldór Kristinn Harðarson hefur gengið til liðs við þjálfarateymi meistaraflokks Þórs á Akureyri. Hann verður aðstoðarþjálfari liðsins auk þess að sinna starfi styrktarþjálfara. Halldór Kristinn, eða Dóri eins og hann er jafnan kallaður, lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en er því ekki lengi að snúa aftur að handboltanum í nýju hlutverki. Langar ekki að hætta en þarft skref fyrir félagið Hann skrifaði á dögunum undir samning við Þór og hefur þegar hafið störf með þjálfarateyminu. „Við erum gríðarlega ánægðir að fá Dóra inn í teymið þar sem hann er ómissandi í starfi deildarinnar,“ segir í tilkynningu Þórs. Þór hóf keppni í Olís-deild karla með tapi gegn Fram í 1.umferðinni en liðið fær HK í heimsókn í næstu umferð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.