
Leikstjórnandinn, Magnús Dagur Jónatansson hefur gengur til liðs við ÍBV og hefur undirritað tveggja ára samning. Þetta tilkynnti ÍBV nú rétt í þessu. Magnús Dagur gengur í raðir ÍBV frá uppeldisfélagi sínu KA. Magnús Dagur hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Nú síðast lék hann á EM í Rúmeníu í sumar, með U20 ára landsliðinu. ,,Við erum afar glöð að fá hann til liðs við ÍBV og hlökkum til samstarfsins.
Velkominn Magnús Dagur," segir í tilkynningunni frá ÍBV. Magnús Dagur skoraði fjögur mörk fyrir KA í 1.umferðinni í sigri liðsins gegn HK en ÍBV tapaði illa gegn Haukum í sömu umferð. Hávær orðrómur var á kreiki í sumar að Magnús Dagur hafi verið ósáttur í sumar og var hann orðaður við önnur lið í sumar. Það varð hinsvegar ekkert úr því en nú er ljóst að hann er farinn frá KA og hefur gengið í raðir ÍBV. KA sótti Dag Árna Heimisson frá Val í sumar og ljóst var að samkeppnin var orðin meiri um spil mínútur í liði KA.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.