Eiríkur Guðni til Víðis

Eiríkur Guðni Þórarinsson hefur fengið félagaskipti til Víðis í Garði sem eru nýliðar í Grill 66 deildinni.

Eiríkur Guðni er fæddur árið 2000 og alinn upp í yngri flokkum KR og svo hjá Val. Lék hann með öllum yngri landsliðum Íslands á sínum tíma. Leiktímabilið 2019/2020 lék hann til að mynda með HK en sumarið 2020 gerði hann 3 ára samning við FH.

Eiríkur, sem er línumaður og sterkur varnarmaður, hefur hinsvegar ekkert leikið handbolta í nokkur ár en nú er ljóst að hann tekur fram skóna á nýjan leik og verður það án efa mikill liðsstyrkur fyrir nýliða Víðis í Grill 66 deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top