Meiðsli landsliðsmannanna raska róinni
INA FASSBENDER / AFP

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, fylgist vel með íslensku landsliðsmönnunum sem eru komnir á fullt með félagsliðum sínum víða um Evrópu.

Hann segir stöðuna heilt yfir góða þótt nokkrir leikmenn séu að glíma við meiðsli.

„Staðan er heilt yfir fín. Ég horfi á mikið af leikjum og fylgist vel með þeim. Það sem ég hef séð er að margir leikmenn eru á fínum stað en það eru meiðsli hér og þar.“

Viggó Kristjánsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson, Teitur Örn Einarsson og Andri Már Rúnarsson glíma allir við meiðsli um þessar mundir. Hann segir þó að um smávægileg meiðsli séu um að ræða og gerir ekki ráð fyrir öðru en að hann geti valið úr þessum leikmönnum fyrir HM í janúar. „Það raskar að sjálfsögðu róinni en það er enn töluvert langt í janúar. Enginn þessara leikmanna er þannig meiddur að hann ætti ekki að vera klár þegar að því kemur.“

Undirbúningur íslenska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið hefst af fullum krafti eftir áramót en Snorri er ánægður með að geta aftur fylgst með leikmönnum sínum hefja nýtt tímabil með sínum félagsliðum. „Það er alltaf gaman þegar deildirnar fara aftur af stað og að sjá hvernig menn koma inn í ný tímabil.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top