Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands og einn sigursælasti handknattleiksþjálfari Íslands frá upphafi, hlaut í síðustu viku heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026. Alfreð hlaut viðurkenninguna fyrir „einstakan árangur á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handknattleiksþjálfara erlendis.“ „Ferill Alfreðs ber vott um einstaka fagmennsku, leiðtogahæfni og árangur,“ segir í tilkynningu Íslandsstofu um viðurkenninguna. „Áhrif hans verða þó ekki aðeins metin í titlum og verðlaunapeningum. Með löngum og farsælum ferli erlendis hefur hann verið brautryðjandi fyrir íslenska þjálfara og átt þátt í að opna þeim leið að stærri verkefnum hjá félagsliðum og landsliðum víða um heim.“ Glæsilegur leikmannaferill Alfreð er fæddur á Akureyri árið 1959 og hóf feril sinn með KA. Hann lék síðar með KR og varð bikarmeistari með félaginu áður en hann hélt til Þýskalands árið 1983 og gekk til liðs við TUSEM Essen. Á fimm árum sínum hjá Essen varð Alfreð tvisvar sinnum Þýskalandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Hann sneri aftur til KR í einn vetur áður en hann hélt til Spánar og lék í tvö ár með Bidasoa. Þar varð hann spænskur bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili. Alfreð var jafnframt lykilmaður íslenska landsliðsins um árabil og var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1989. Hann var síðar tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ árið 2019. Enn meiri afrek sem þjálfari Eftir að leikmannaferlinum lauk tók við þjálfaraferill sem hefur gert Alfreð að einum þekktasta íslenska þjálfara í íþróttasögunni. Hann gerði KA að Íslandsmeisturum árið 1997 áður en hann hélt aftur til Þýskalands. Þar náði hann frábærum árangri með Magdeburg og varð meðal annars Þýskalandsmeistari og Evrópumeistari með félaginu. Alfreð tók síðar við Gummersbach og þjálfaði einnig íslenska landsliðið áður en hann tók við Kiel árið 2008. Næstu ellefu árin stýrði hann Kiel og vann nánast allt sem hægt var að vinna með þýska stórveldinu. Undir hans stjórn varð Kiel sex sinnum Þýskalandsmeistari, sex sinnum þýskur bikarmeistari og tvívegis Evrópumeistari. Alfreð tók við þýska landsliðinu árið 2020 og hefur stýrt liðinu síðan. Hápunkturinn til þessa er silfurverðlaun Þýskalands á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Alfreð hefur því verið í fremstu röð evrópsks handbolta í áratugi, fyrst sem leikmaður og síðar sem þjálfari, og rutt brautina fyrir þá fjölmörgu íslensku handknattleiksþjálfara sem hafa fylgt í kjölfarið og tekið að sér stór verkefni erlendis.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.